Felix er sænskt vörumerki sem tilheyrir Orkla Svíþjóð. Felix leggur mikið upp úr því að hráefnið sé vel valið og neytendur geti treyst því að þeir séu að fá hágæða vörur með bragðið í fyrirrúmi, rétt eins og maturinn sé heimagerður.

Sýn Felix er að bjóða upp á fleiri holla valkosti, fleiri grænmetisrétti, meira lífrænt og færri aukefni. Með góðum mat viljum við hafa góð áhrif. Á Íslandi er Felix þekktast fyrir sínar tómatvörur og sérstaklega Felix tómatsósu, en vörumerkið er með mjög breiða línu af allskyns matvöru.