Algengar spurningar

Velkomin á vefverslun Danól, hérna höfum við tekið saman helstu spurningar og svör sem viðskiptavinir kunna að hafa. Smelltu hérna til að horfa á myndbandskynningu vefverslunarinnar.

 

Hverjir geta verslað gegnum vefverslun Danól?

Allir viðskiptavinir Danól, sem hafa virðisaukanúmer og standa í rekstri af einhverju tagi, geta keypt í gegnum vefverslunina.

 

Hvernig ber ég mig að?

Það eina sem þú þarft að gera er að smella hérna og þú ert leidd/ur í gegnum skráningarferlið. Ef þú ert þegar notandi þá geturðu skráð þig inn hérna

 

Hver er lágmarksupphæð á pantanir hjá Danól?

Lágmarksupphæð er 25.000 kr. hvort sem viðskiptavinur velur að sækja pöntunina eða fær hana senda til sín. Þó er hægt að panta undir þessari upphæð að viðbættu 7.000 kr. þjónustugjaldi.

 

Er Danól með einhverja stefnu í persónuverndarmálum?

Okkur er umhugað um öryggi persónuupplýsinga þinna. Persónuverndarstefna viðskiptavina Danól er að finna hér: https://danol.is/stefnur. Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér hana.

 

Hvaða upplýsingar geymið þið um notendur?

Vefverslun Danól notar vafrakökur til að tryggja sem bestu upplifun fyrir notendur. Greiningarvafrakökur eru notaðar til að skoða hvernig viðskiptavinir okkar nota vefverslunina og eru þau gögn notuð til að bæta vefverslunina og þína upplifun. Notandi getur sleppt notkun á Google Analytics með því að nota þetta verkfæri: https://tools.google.com/dlpage/gaoptout.

 

Mig langar ekki að fá send fréttabréf né tilboð, get ég skráð mig af póstlistanum ykkar?

Við virðum óskir viðskiptavina okkar. Óskir þú eftir að fá slík fréttabréf ekki send getur þú afþakkað þau með því að afskrá netfangið hitt hérna.

 

Hvert á maður að sækja pantanir?

• Ef sækja þarf matvörur og sérvöru (að undanskyldri snyrtivöru og fatnaði): afgreiðsla Vöruhótelsins að Sundabakka 2, 104 RVK.

• Ef sækja þarf frystivörur: afgreiðsla Fjarðarfrosti Óseyrarbraut 22, 220 Hafnarfirði.

• Ef sækja þarf snyrtivöru og fatnað: afgreiðsla Ölgerðarinnar að Grjóthálsi 11, 110 RVK.

 

Hvaða verð sé ég í vefversluninni?

Öll þau verð sem þú sérð í vefversluninni eru þín verð með afslætti, gjöldum og virðisauka.

 

Hvernig panta ég gegnum vefverslunina?

Við höfum unnið að því að hafa verslunina eins einfalda í notkun og mögulegt. Hægt er að skoða vöruúrvalið út frá tenglum á forsíðunni og hægt er að bæta vöru í körfu hvar sem þú finnur hana. Fyrir endurtekin kaup mælum við með að nota Mínar vörur en þar getur viðskiptavinur skoðað vörur sem hefur verið verslað síðastliðna 6 mánuði, hversu mikið hefur verið keypt og hægt að setja beint í körfuna. Einnig er hægt að búa til sína eigin innkaupalista á þessari síðu.

 

Get ég greitt með korti á vefnum?

Já, hægt að greiða með kreditkorti á vefversluninni :)

 

Af hverju sé ég engin verð í vefversluninni?

Þú þarft að vera innskráður notandi til að sjá öll verð.

 

Get ég breytt pöntun?

Svo lengi sem þú ert ekki búinn að ganga frá pöntuninni þá geturðu bætt í og fjarlægt úr körfunni eins oft og lengi sem þú vilt. Ef þú ert búinn að ganga frá pöntun þá þarftu að hafa samband við Þjónustuver Danól s. 595-8100 eða senda póst á vefverslun@danol.is og við hjálpum þér að breyta pöntun.

 

Hvaða kaffi keypti ég þarna um daginn?

Ef þú smellir á Mínar síður geturðu séð alla þína reikninga undir Reikningar. Ef þú vilt flétta upp á stakri vöru þá geturðu smellt á Mínar vörur og séð seinustu 6 pantanir sundurliðað á vöru.

 

Af hverju get ég ekki pantað snyrtivörur?

Viss skilyrði eru fyrir að vera endursöluaðilar snyrtivara . Endilega sendu fyrirspurn á snyrtivara@danol.is fyrir frekari upplýsingar.

 

Hvernig klára ég pöntun?

Efst á vefversluninni geturðu séð upplýsingar um körfuna þína og fjölda vara. Þegar þú vilt ganga frá pöntun smellirðu á körfuna og ,,Ganga frá pöntun'' þar sem taka við fjögur skref sem leiða þig áfram.

MÍNAR SÍÐUR

Starfsmaður sækir um aðild að fyrirtæki