Hættulega góðar súkkulaði smákökur fylltar með Walkers karamellum
Innihald:
150 g smjör
300 g hveiti
½ tsk matarsódi
½ tsk vanillusykur
¼ tsk sjávar salt
150 g ljós púðursykur
100 g sykur
1 egg
1 eggjarauða
2 msk nýmjólk
70 g brætt súkkulaði
70 g súkkulaði bitar
1 poki Karamellur frá Walkers
Aðferð:
Bræðið smjörið og leyfið þvi að kólna svolítið.
Blandið saman hveiti, matarsóda, vanillu og salti í skál.
Setjið sykurinn, púðursykurinn og smjör saman í hrærivélaskál og hrærið vel saman.
Bætið eggjunum út í sykurblönduna ásamt mjólkinni og blandið vel saman við.
Setjið hveitiblönduna út í varlega og hrærið vel saman við.
Bræðið súkkulaðið og blandið því mjög létt saman við deigið, mér finnst fallegra að hræra lítið og hafa deigið smá tvílitt.
Skerið súkkulaði niður og blandið því saman við deigið.
Kveikið á ofninum og stillið á 190°C.
Takið 1 msk af deigi, búið til kúlu og fletjið hana létt niður, takið eina karamellu úr umbúðunum og setjið á flatta deigið, takið þá aðra matskeið af deigi og notið það til að fela karamelluna, lokið hliðunum með því að klemma deigið saman.
Setjið kúlurnar á smjörpappír á ofnbakka og látið vera um það bil 5 cm á milli hverrar kúlu.
Bakið í um það bil 10 mín, takið út úr ofninum þegar þær eru byrjaðar að verða gullnar á litinn og takið þá strax úr ofninum og setjið á grind svo þær byrji að kólna strax.