Nýtt nafn og nýr kafli
Stóreldhúsasvið Danól hefur fengið nýtt nafn og ásýnd og mun héðan í frá starfa undir merkjum Vistró. Með breytingunni er lagður grunnur að nýjum kafla í þjónustu Danól við stóreldhús og veitingamarkaðinn, þar sem áhersla verður lögð á fagþekkingu.
Hafsteinn Snæland sölu- og markaðsstjóri
Hafsteinn Snæland hefur tekið við forystu Vistró sem sölu- og markaðsstjóri og mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og vöxt fyrirtækisins á næstu árum og vinna náið með starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum að því að efla vöruúrval og þjónustu.
Vistró nafnið með meistaragráðu
Vistró er nýyrði með vísanir í bæði vistir og veitingageirann. Vörumerkið og ásýnd þess voru þróuð í samstarfi við danska markaðsfyrirtækið CoPlus. Vistir eru aðföngin sem hvert eldhús þarf, og orðið "bistró" þekkja allir.
Ítölsk gæði frá Olifa
Olifa flytur inn sérvalin ítölsk gæðahráefni sem byggja á sterkum tengslum við framleiðendur víðs vegar um Ítalíu. Vöruúrvalið spannar meðal annars upprunavottaðar jómfrúarolíur, Rummo pasta, tómataafurðir og kryddvörur sem njóta trausts bæði hjá heimilum
Októbertilboð
Í október bjóðum við fulleldaðar sænskar kjötbollur og fjölbreytt meðlæti á tilboði. Settu saman klassíska máltíð með kartöflumús og brúnni sósu eða berðu kjötbollurnar fram að ítölskum hætti með pasta og tómatsósu.
Tilboðsvörur
Hér finnur þú fjölbreytt úrval vara á sérkjörum, hvort sem um er að ræða kynningartilboð, losunartilboð eða vörur með stuttan endingartíma.