
Olifa flytur inn sérvalin ítölsk gæðahráefni sem byggja á sterkum tengslum við framleiðendur víðs vegar um Ítalíu. Vöruúrvalið spannar meðal annars upprunavottaðar jómfrúarolíur, Rummo pasta, tómataafurðir og kryddvörur sem njóta trausts bæði hjá heimilum og fagfólki. Á bak við Olifa standa Ása María Reginsdóttir og Emil Hallfreðsson, sem bjuggu á Ítalíu um tveggja áratuga skeið og deila ástríðu fyrir ítalskri matarhefð. Í samstarfi við Danól eru vörur Olifa aðgengilegar Horeca-markaðnum um allt land með öflugri dreifingu, faglegri ráðgjöf og áreiðanlegri þjónustu.