Nýtt nafn og nýr kafli
Stóreldhúsasvið Danól hefur fengið nýtt nafn og ásýnd og mun héðan í frá starfa undir merkjum Vistró. Með breytingunni er lagður grunnur að nýjum kafla í þjónustu Danól við stóreldhús og veitingamarkaðinn, þar sem áhersla verður lögð á fagþekkingu.
Hafsteinn Snæland sölu- og markaðsstjóri
Hafsteinn Snæland hefur tekið við forystu Vistró sem sölu- og markaðsstjóri og mun leiða áframhaldandi uppbyggingu og vöxt fyrirtækisins á næstu árum og vinna náið með starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum að því að efla vöruúrval og þjónustu.
Vistró nafnið með meistaragráðu
Vistró er nýyrði með vísanir í bæði vistir og veitingageirann. Vörumerkið og ásýnd þess voru þróuð í samstarfi við danska markaðsfyrirtækið CoPlus. Vistir eru aðföngin sem hvert eldhús þarf, og orðið "bistró" þekkja allir.
Ítölsk gæði frá Olifa
Olifa flytur inn sérvalin ítölsk gæðahráefni sem byggja á sterkum tengslum við framleiðendur víðs vegar um Ítalíu. Vöruúrvalið spannar meðal annars upprunavottaðar jómfrúarolíur, Rummo pasta, tómataafurðir og kryddvörur sem njóta trausts bæði hjá heimilum
Jólin
Hér finnur þú fjölbreytt úrval gæðavara fyrir jólin, hvort sem verið er að undirbúa jólahlaðborð, veislur eða hátíðarmatseðil. Við hjálpum þér að finna réttu vörurnar og gera undirbúninginn fyrir annasamasta tíma ársins einfaldari.
Tilboðsvörur
Hér finnur þú fjölbreytt úrval vara á sérkjörum, hvort sem um er að ræða kynningartilboð, losunartilboð eða vörur með stuttan endingartíma.