Hráefni:
- 3 eggjahvítur
- 200 g púðursykur
- 150 g rjómasúkkulaðidropar
- 150 g súkkulaðihjúpað lakkrískurl
- 1 dós Hockey Pulver
Aðferð:
- Kveikið á ofninum, stillið á 150°C og undir yfir hita.
- Þeytið eggjahvíturar og þegar mjúkir toppar hafa myndast bætið þá sykrinum hægt og rólega út í og þeytið þar til eggjahvíturnar eru stífþeyttar.
- Bætið súkkulaðinu og lakkrískurlinu út í, blandið varlega saman við með sleikju.
- Notið tvær teskeiðar til þess að móta toppana, passið að hafa ágætis pláss á milli þar sem topparnir stækka í ofninum, setjið um það bil ¼ tsk af Hockey Pulver yfir hvern topp.
- Bakið í 16-17 mín.